VERUND
ÁRA MANNSINS

Að lesa úr árunni


Tilbaka-home.jpg - 1412 Bytes
Andleg mal-home.jpg - 1013 Bytes
Annad efni-home.jpg - 1013 Bytes
Nytt-home.jpg - 1024 Bytes
Til adalsidu-home.jpg - 1020 Bytes


 

aurafull motion.jpg - 109937 Bytes

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

but-and-tilbaka.gif - 1269 Bytes
but-and-tiladal.gif - 1288 Bytes

Ára mannsins gefur ef til vill meira til kynna en nokkuð annað af persónugerð hans, að hann er eilíf lífsorka í alheiminum. Hún endurspeglar dýrð uppruna okkar og þá stórkostlegu aðaláætlun sem við erum öll hluti af. Áran er reyndar sjálft lífsefnið. Það eitt að sjá áru mannsins og greina fegurð hennar er magnþrungið, en til þess að uppgötva fulla þýðingu árunnar þarf að skoða dýpra í eðli hennar og flókið ferli.
Á sama hátt og efnislíkaminn, þá er áran nokkurs konar gagnvirkt kerfi, margvíslega samsett og virk. Jafnvel minnsti og óskýrasti þáttur hennar getur verið mikilvægur í heildinni. Ef skýra á vel merkingar árunnar þá þarf að taka til greina sérhvern efnisþátt hennar og gildi hans fyrir alla áruna í heild.

Að túlka liti árunnar
Frá sögulegum sjónarhóli, hafa flestar fornar menningarþjóðir notað liti sem miklvæg tákn eða merkingu um uppsprettu valds. Jafnvel guðir þeirra voru í sérstökum litum sem táknuðu eðli þeirra og vald. Mörg menningarsamfélög trúðu því að litir hefðu töframátt, sérstaklega þegar um var að ræða heilun. Það var líka útbreiddur siður að nota mismunandi liti til þess að tákna eiginleika eins og hugrekki, trúmennsku, tignarstöðu og hollustu.
Jafnvel í dag eru litir enn notaðir á meðal þróuðustu menningarsamfélaga heimsins til þess að gefa til kynna ýmis þjóðfélagsleg og trúarleg hugtök. Á meðal algengra dæma um það má nefna hvítan lit sem tákn hreinleika, grænan tákn lífsins, rauðan hugrekkis og svartan sorgar. Í mennta- og háskólum eru litir notaðir til þess að tákna mismunandi námsleiðir. Á hernaðarsviðinu hafa margvíslegir litir og litasamsetningar sérstaka þýðingu sem boðmerki og dulmál.
Á mannlega sviðinu verða tilfinningar og skynjun fyrir miklum áhrifum af mismunandi litum. Sumir þeirra hafa æsandi áhrif þegar aftur aðrir eru róandi. Flest okkar finna góð áhrif frá sumum litum og slæm frá öðrum. Rannsóknir hafa sýnt að vissir litir geta aukið matarlyst, á meðan aðrir höfða til lyktarskynsins. Enn aðrir eru svo hlutlausir í aðlöðun sinni. Flestar manneskjur eiga sér uppáhalds lit, og þar er blár mjög ofarlega á blaði hvað vinsældir snertir.
Ef til vill er það ekkert undarlegt að litaraftið er einn mikilvægasti eiginleiki áru mannsins. Litur í árunni veitir sýnilegt merki um orku, þar sem hvert litaafbrigði gefur til kynna sérstaka orkutíðni. Þó svo að aðalliturinn, sem getur umlukið allan líkamann, sjáist nokkuð auðveldlega í árunni, þá munu samt sem áður fjölmörg litaafbrigði sem ná yfir allt hið sýnilega litróf, birtast annað slagið. Í regnbogaáru liggja ýmsir litir um líkamann í afmörkuðum lögum, sem öll hafa sín merkjanlegu skil, eða þá blandast mjúklega öðrum litalögum og mynda þannig litaskil úr blöndu af litum. Litir árunnar geta birst sem óreglulegar klessur sem leysast upp inn í aðra liti, eða að þær mynda sérstaka bletti sem sjást einir og sér. Þó að ára mannsins sé aldrei algjörlega hvít eða svört, þá birtast þeir litir stundum einhvers staðar í árunni. Þessir litir sjást venjulega sem þéttir blettir ljóss eða skugga, frekar en skýrt afmörkuð svæði.
Burtséð frá dreifingu litanna, þá er styrkleiki, útbreiðsla og skírleiki þeirra í árunni mjög mismunandi. Stundum má sjá lítil og þétt litasvæði, afar skær og marglit, í annars frekar litlausri áru. Að öllu jöfnu er þéttleiki og útbreiðsla litarins í réttu samhengi við orkutíðni hans, því þéttari og útbreiddari sem liturinn er þeim mun meiri eru áhrif hans og táknræn merking. Skírleiki eða birtustig litar er nytsamur mælikvarði á eðlisgildi hans, sem þýðir að því skírari og bjartari sem hann er þeim mun ríkari eru gildi hans í manneskjunni. Deyfð eða litleysi í árunni merkir nánast alltaf lítil eða þróttlaus áhrif.
Í þessum þáttum munum við skoða m.a. mikilvægi mismunandi lita í árunni, með sérstöku tilliti til tengsla á milli litategunda og persónulegra þátta.